
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu
-
BÚUM VEL veitir fólki á tímamótum sérhæfða lögfræðiþjónustu.
-
Er komið að húsnæðisskiptum eða vantar þig stuðning og ráðgjöf við erfðaskrá, kaupmála eða dánarbússkipti?
-
Vilt þú fá lögmann þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu?
-
Fasteignasölurnar Eignamiðlun og Torg veita afslátt til viðskiptavina BÚUM VEL sem nemur þóknun fyrir þjónustu fyrirtækisins. Það er góðu samstarfi að þakka að unnt er að bjóða þjónustuna, þér að kostnaðarlausu.
Margþætt ráðgjöf á sviði erfðamála og búsetubreytinga
Markmið fyrirtækisins er að veita persónulega þjónustu og hjálpa fólki að fóta sig í heimi fasteigna-sölu og -kaupa. Algengt er að byrja á opnu samtali og yfirferð um óskir og þarfir viðskiptavina. Í framhaldinu getur fyrirtækið séð um eftirfarandi verkefni fyrir hönd viðskiptavina.
-
Sala fasteigna: Skráð fasteign á söluskrá og séð um öll samskipti við fasteignasölu og kaupendur. Viðskiptavinir fá hjálp til að meta kauptilboð og aðstoð við yfirlestur kaupsamnings og afsals, svo að þú vitir nákvæmlega hvað þú ert að skrifa undir.
-
Kaup fasteigna: Í opna samtalinu er markmiðið að komast að niðurstöðu um búsetuform sem hentar þér best á þessum tímamótum. Þær upplýsingar eru nýttar til að finna réttu eignina handa þér og þú nýtur þjónustu í gegnum allt kaupferlið.
-
Aðstoð við löggerninga: Það á einkum við um samninga er varða erfðir, búskipti, fjármál hjóna og fjárskipti, s.s. kaupmála, erfðaskrár, skilnaðarsamninga og uppgjör dánarbúa.
Hvers vegna ætti ég að leita til BÚUM VEL?
Er komið að því að skipta um eign?
Vilt þú fá lögmann þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu?
Þarfir okkar fyrir húsnæði eru ekki þær sömu þegar við erum 35 ára eða þegar við erum komin yfir sextugt. Við heyrum oft fólk segja þegar það hefur selt húsið og flutt í hentuga íbúð.
"Ég vildi að ég hefði gert þetta fyrir 10 árum".


Hvar langar þig að búa?
Hvaða búsetuform hentar þér best á þessum tímamótum?
-
Hverjar eru þarfir þínar núna?
-
Hvernig sérð þú nýja heimilið fyrir þér?
-
Er það íbúð í fjölbýli eða er það í einbýli?
-
Er það í borginni eða úti í sveit?
-
Þarft þú stærra eða minna húsnæði?
-
Hvað hentar þér best miðað við núverandi aðstæður?
Að samtalinu loknu finnum við réttu eignina og þú færð hjálp við að ganga frá kaupum.
Fyrir framtíðina
Fyrirtækið veitir yfirgripsmikla þjónustu á sviði erfðamála svo þú getir verið fullviss um að ráðstöfun eigna þinna sé eftir þínum óskum.
-
Vilt þú tala um hvert eignir þínar renni eftir þinn dag?
-
Vilt þú gera tilteknar ráðstafanir varðandi eigur þínar?
-
Vilt þú greiða hluta eigna þinna til barna í formi fyrirfram greidds arfs?

Um BÚUM VEL
Þjónusta fyrirtækisins sameinar þekkingu, reynslu, hæfileika og ástríðu Elínar.
Hún hefur starfað sem lögfræðingur, lögmaður, markþjálfi og framkvæmdastjóri sl. þrjá áratugi, fyrir fjölmörg fyrirtæki og stofnanir og á að baki fjölbreytta reynslu.
-
BÚUM VEL, lögmaður
-
Útfararstofa Kirkjugarðanna, hún var framkvæmdastjóri í sex ár. Elín setti m.a. á fót lögfræðiþjónustu útfararstofunnar. Hún þjónaði syrgjendum og fólki sem vildi ráðstafa eignum og gera hinsta vilja og erfðaskrár. Þá annaðist hún frágang dánarbússkipta
-
Dómstólaráð, var framkvæmdastjóri ráðsins í áratug
-
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna, hún var fyrsti forstöðumaðurinn
-
Húsnæðisdeild félagsmálaráðuneytisins, hún skrifaði og vann að fjölmörgum lagafrumvörpum og reglugerðum á sviði húsnæðismála og greiðsluvanda heimilanna
-
Byko, lögmaður fyrirtækisins, annaðist m.a. sölu fasteigna félagsins
-
Lögmenn Höfðabakka, innheimta og málflutningur
-
Eignamiðlun, skjalagerð kaupsamninga og afsala og lausn ágreinings vegna gallamála við fasteignakaup
-
Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna, í lánadeild
-
Kenndi verslunarrétt í Verzlunarskóla Íslands
-
Síðastliðna áratugi hefur Elín með góðum árangri veitt fjölskyldu, vinum og viðskiptavinum ráðgjöf varðandi sölu og kaup fasteigna.

Önnur þjónusta
BÚUM VEL veitir ráð varðandi löggerninga á sviði erfðamála, búskipti, fjármál hjóna og fjárskipti, s.s. kaupmála, erfðaskrár, skilnaðarsamninga og skipti dánarbúa.
Hinsti vilji
Boðið er upp á samtal og vinnslu yfirlýsingar um hinsta vilja þegar að lífslokum kemur.
Búskipti dánarbúa
Þá er dánarbúum boðið upp á þjónustu varðandi búskipti, gengið er frá beiðni um einkaskipti, sölu eigna og
frá fjárskiptum erfingja.

Helstu kostir
Aukin þjónusta, enginn aukakostnaður
Viðskiptavinir njóta aukinnar þjónustu við fasteignasölu, en greiða sama gjald og ella.
Það eru fasteignasölurnar Eignamiðlun og Torg sem veita afslátt sem nemur greiðsu fyrir þjónustu fyrirtækisins.
Það er góðu samstarfi að þakka að unnt er að bjóða þjónustuna, þér að kostnaðarlausu.
Persónuleg þjónusta
Markmið fyrirtækisins er að hjálpa þér að takast á við breytingar og finna það búsetuform sem hentar þér best.
Fyrsta skrefið er samtal um langanir og þarfir.
Stuðningur á krossgötum
Stórum breytingum getur fylgt mikið tilfinningarót, sérstaklega ef breytingarnar eru vegna áfalla, missis eða annarra atburða. Elín hefur áratuga reynslu af samtali við fólk á tímamótum og að aðstoða viðskiptavini við að taka skref af öryggi, í gleði og sátt.
Þinn fulltrúi, sem sér um þín samskipti
Þegar þú ákveður að nýta þér þjónustu BÚUM VEL tekur Elín að sér að vera talsmaður þinn og umboðsmaður gagnvart mögulegum kaupendum, seljendum og fasteignasölu. Það þýðir að hún verður þér við hlið alla leið í söluferlinu, hún sér um samskipti og tryggir að þú skrifir undir sölusamning og kaupsamning með öryggi og gleði.
Umsagnir viðskiptavina
Samstarfsaðilar
Verðskrá
Sala fasteigna
Viðskiptavinir greiða ekki aukakostnað vegna þjónustu BÚUM VEL vegna fasteignasölu, heldur njóta viðskiptavildar fyrirtækisins hjá Eignamiðlun og Torg fasteignasölu. Hluti sölulauna greiðist til BÚUM VEL og hluti til fasteignasölunnar.
Kaup fasteigna
Viðskiptavinir greiða tímagjald fyrir þjónustu BÚUM VEL við yfirlestur kauptilboðs, kaupsamnings og afsals. Tímagjald er 26.500 + vsk.
Viðskiptavinir sem eru 60+ njóta 10% afsláttar frá tímagjaldi. Tímagjald 23.850 + vsk.
Búskipti, kaupmáli, erfðaskrá og almenn lögmannsþjónusta
Viðskiptavinir greiða tímagjald fyrir þjónustu BÚUM VEL við uppgjör dánarbúa, gerð kaupmála, erfðaskrá, þjónustu við fyrirframgreiðslu arfs og eða annarrar lögmannsþjónustu.
Tímagjald er 26.500 + vsk.
Ef fasteign er í dánarbúinu, þá greiðist vinna við sölu eignarinnar sem hluti af sölulaunum, sjá verðskrá um sölu fasteigna.
Viðskiptavinir sem eru 60+ njóta 10% afsláttar af tímagjaldi varðandi vinnu við erfðaskrár og kaupmála. Tímagjald 23.850 + vsk. Algengt verð fyrir erfðaskrá fyrir 60+ er 59.625 + vsk. 14.310 = 73.935 kr.
Algengar spurningar
Hvað kostar þessi þjónusta?
Viðskiptavinir greiða ekkert aukalega fyrir þjónustu BÚUM VEL umfram söluþóknun fasteignarinnar sem samið er um
við fasteignasöluna.
Fyrir aðra þjónustu greiðist samkvæmt verðskrá.
Hvað gerist ef ég hætti við að selja eignina mína?
Þá er greitt tímagjald í samræmi við þá vinnu sem BÚUM VEL hefur innt af hendi. Sjá nánar í verðskrá.

Hafið samband
BÚUM VEL hjálpar þér að selja og finna fasteignina sem hentar þér best á þeim tímamótum sem þú stendur á. Það er markmið fyrirtækisins að gera ferlið við búsetuskipti að ánægjulegri upplifun sem þú treystir frá upphafi til enda.
Hafið samband til að fá frekari upplýsingar og ráðgjöf varðandi fasteignaskipti og eða aðra þjónustu fyrirtækisins.